|
Post by Septbumba2019 on Jan 10, 2019 8:21:27 GMT
Sælar, Nú geng ég með mitt þriðja barn. Á hinum meðgöngunum fór ég í snemmsónar á 6-7 viku en ég sá að það er talað um að fara á milli 8-12 viku. Er búið að breyta þessu? Mig langar helst að fara í kringum 7.viku, þá á að vera hægt að heyra hjartsláttinn.
Eigið þið pantaðan tíma í snemmsónar? Hvað verðið þið komnar langt þegar þið farið?
|
|
esja
New Member
Posts: 6
|
Post by esja on Jan 10, 2019 10:29:55 GMT
Er það ekki bara til að það sé öruggt að það sjáist eitthvað? finnst mjög algengt að konur séu komnar styttra en þær halda og fara í panic afþví það er ekki hjartsláttur. Ég hélt að ég væri komin 8 vikur þegar ég fór í snemmsónar með fyrsta barn (vissi alveg hvenær síðustu blæðingar voru og var regluleg) en var svo bara 6v +4, var mjög fegin að hafa beðið
|
|
|
Post by Stella2019 on Jan 10, 2019 11:57:13 GMT
Á pantað í snemmsónar á miðvikudaginn í næstu viku, er þá komin 7 vikur og 3 daga samkvæmt mínum útreikningum. Var búin að vera að googla eitthvað um snemmsónar og las að það væri gott að fara eftir viku 7
|
|